Valfell Borgarbyggð – Auglýsing um niðurstöðu sveitarstjórnar Borgarbyggðar vegna skipulags

júní 28, 2022

Aðalskipulag Borgarbyggðar 2010-2022

Breytingin tekur til þess að fella niður skilgreint svæði Félagsheimili, Valfell (Þ14), úr þjónustustofnun í landbúnaðarlandi og gefinn er kostur á fastri búsetu á svæðinu. Stefnt er á stofnun lögbýlis og vera með dúnhreinsun á svæðinu. Valfell er undir 3ha að stærð. Ekkert deiliskipulag er á svæðinu, breytingin samræmist meginstefnu aðalskipulagsins.

Tillagan er sett fram á uppdrætti, kort og greinargerð, Niðurfelling á Þ14 félagsheimilinu Valfell – Óveruleg breyting á Aðalskipulagi Borgarbyggðar 2010-2022, dags. 27.05.2022.

Aðalskipulagsbreytingin hefur verið send Skipulagsstofnun sem sér um lokaafgreiðslu erindisins.

Þeir sem óska nánari upplýsinga um tillögunar og niðurstöðu sveitarstjórnar geta snúið sér til skipulags- og byggingardeildar Borgarbyggðar, Digranesgötu 2, Borgarnesi.

Nánari upplýsingar má nálgast á heimasíðu Borgarbyggðar á www.borgarbyggd.is

Vakin er athygli á málskotsrétti samkvæmt 52. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og lögum um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála nr. 130/2011 en þar kemur fram að stjórnvaldsákvarðanir má kæra til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála.

Þeir einir geta kært stjórnvaldsákvarðanir sem eiga lögvarða hagsmuni tengda þeirri ákvörðun sem kæra á. Kærufrestur er einn mánuður frá birtingu skipulagsáætlana í B-deild Stjórnartíðinda.

Aðalskipulagsbreyting

Sveitarstjórn Borgarbyggðar


Share: