Sveitarstjórn Borgarbyggðar samþykkti þann 11. ágúst 2022 eftirfarandi tillögur, breytingu á deiliskipulagi frístundabyggðar í landi Urriðaár og nýtt deiliskipulag í landi Urriðaár við Klettastíg og Birkistíg. Tillögurnar voru auglýstar skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Engar athugasemdir bárust á auglýsingatíma.
Deiliskipulagstillögurnar hafa verið sendar Skipulagsstofnun og munu taka gildi með auglýsingu í B-deild Stjórnartíðinda.
Þeir sem óska nánari upplýsinga um tillögurnar og niðurstöðu sveitarstjórnar geta snúið sér til skipulags- og byggingardeildar Borgarbyggðar, Bjarnarbraut 8, Borgarnesi.
Nánari upplýsingar má nálgast á heimasíðu Borgarbyggðar á www.borgarbyggd.is
Vakin er athygli á málskotsrétti samkvæmt 52. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og lögum um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála.
Þeir einir geta kært stjórnvaldsákvarðanir sem eiga lögvarða hagsmuni tengda þeirri ákvörðun sem kæra á. Kærufrestur er einn mánuður frá birtingu skipulagsáætlana í B-deild Stjórnartíðinda.
Breyting á deiliskipulagi – fyrir breytingu
Breyting á deiliskipulagi – eftir breytingu