Gatnaframkvæmdir við Melabraut á Hvanneyri eru hafnar og má búast við framkvæmdum á svæðinu yfir næstu vikur. Vegfarendur og íbúar eru beðnir um að sýna aðgát og gera ráð fyrir mögulegum truflunum á umferð á meðan á framkvæmdum stendur.
Framkvæmdir við Geldingaársveg (5077) föstudaginn 25. September.
Vegagerðin hefur gefið heimild til malbikunar á þjóðvegi 1 (1-g3) við Geldingaársveg (5077) föstudaginn 25. September. Framkvæmd hefst kl 05:30 og reiknað er með að henni sé lokið um 11:00 sama dag. Hjáleið er um Melasveitarveg 505 (10-15 mín aukarúntur) Vinsamlegast virðið hraðatakmarkanir og merkingar á svæðinu.
Tilkynning vegna reikninga á island.is
Vegna tæknilegra vandræða hefur gengið illa að senda reikninga frá Borgarbyggð inn á island.is, á næstu dögum munu því nýir og eldri reikningar berast inn á pósthólf greiðenda. Þó reikningur sé að berast núna þarf ekki að vera að hann sé ógreiddur. Rétt bókunardagsetning reiknings kemur fram á reikningnum sjálfum. Á næstu dögum ættu því greiðendur að fá tilkynningar um …
Malbikun í Borgarnesi
Malbikun er að hefjast við eftirfarandi íbúagötur í Borgarnesi: Miðvikudaginn 24.06 hefst vinna við að malbika Fálkaklett, í framhaldi verður Sólbakkinn malbikaður. Föstudaginn 26.06 lokar Skallagrímsgata í um 2 klst frá klukkan 13:00-15:00 þegar unnið verður við malbikun á stuttum hluta götunnar. Við biðjumst velvirðingar á þeirri röskun sem íbúar verða fyrir á meðan á þessu stendur.
Tilkynning – Notkun bréfpoka undir lífrænan úrgang
Borgarbyggð vill minna íbúa á að lífrænn úrgangur skal ávallt fara í bréfpoka. Bréfpokar henta best til moltugerðar og tryggja að úrgangurinn sé meðhöndlaður á réttan hátt. Athugið: Ekki er tekið við lífrænum úrgangi í maíspokum Ekki er tekið við lífrænum úrgangi í plastpokum eða öðrum pokum en bréfpokum Bréfpoka má nálgast í flestum matvöruverslunum. Við þökkum íbúum fyrir að …
Innilaug lokuð vegna viðhalds
Innilaugin í sundlauginni í Borgarnesi er lokuð vegna viðhalds. Hún opnar aftur miðvikudaginn 20. janúar.
Uppfærsla á klippikortum vegna gámastöðvar
Umhverfis- og landbúnaðarnefnd lagði til breytingar á klippikortum vegna notkunar gámastöðvar sveitarfélagsins, sem voru samþykktar í sveitarstjórn í desember síðastliðnum. Samkvæmt samþykktinni verða klipp fyrir árið 2026 alls 32 talsins. Hvert klipp samsvarar 0,25 rúmmetrum og munu klippikortin gilda til og með 1. febrúar 2027. Fasteignareigendur sem áður hafa sótt kort þurfa að fara inn á Borgarkort.is, skrá sig inn, …
Afgreiðsla í Ráðhúsi Borgarbyggðar verður lokuð milli kl. 11.30 og 12.30 þann 23.desember.
Afgreiðsla í Ráðhúsi Borgarbyggðar verður lokuð í hádegi þann 23. desember vegna Skötuveislu starfsmanna.Hægt verður að hafa samband í síma 433-7100 eða á borgarbyggd@borgarbyggd.is . Afgreiðsla opnar svo aftur kl.12.30
Rafmagnslaust verður á Mýrum þann 23.9.2025 frá kl 13:00 til kl 16:00
Rafmagnslaust verður á Mýrum þann 23.9.2025 frá kl 13:00 til kl 16:00 vegna vinnu við dreifikerfið. Mögulega kemur rafmagn á í stuttan tíma undir lok straumleysis vegna prófunar. Nánari upplýsingar veitir stjórnstöð í síma 5289000. Kort af svæðinu má sjá á www.rarik.is/rof
Sameingakosning Borgarbyggðar og Skorradalshrepps
Talning atkvæða fer fram eftir að öllum kjörstöðum hefur verið lokað laugardaginn 20. september 2025. Þá verður búið að safna saman kjörkössum og fara yfir utankjörfundaratkvæði.Talning hefst svo kl. 19:00 sama dag í Hjálmakletti. Úrslit verða kynnt að talningu lokinni.








