Skólahald fellur niður í uppsveitum vegna veðurs

febrúar 25, 2022
Featured image for “Skólahald fellur niður í uppsveitum vegna veðurs”

Í morgun var tekin ákvörðun um að fella niður skólahald í uppsveitum Borgarbyggðar vegna óveðurs.

Fyrirkomulagið á skólahaldi í dag er svohljóðandi:

Grunnskóli Borgarfjarðar

  • Skólahald fellur niður á Varmalandi.
  • Skólahald fellur niður á Kleppjárnsreykjum.
  • Skólahald á Hvanneyri fer fram með hefðbundnum hætti.

Leikskólinn Hnoðraból

  • Skólahald fellur niður.

Leikskólinn Andabær

  • Skólahald fer fram með hefðbundnum hætti.

Frístund á Hvanneyri

  • Starfsemi fellur niður.

Íbúar eru beðnir um að sýna aðgát og fara varlega.


Share: