Laust starf leikskólakennara á Hnoðrabóli

mars 8, 2022
Featured image for “Laust starf leikskólakennara á Hnoðrabóli”

Laus er til umsóknar 100% staða leikskólakennara.

Við leitum eftir öflugum og drífandi einstaklingi sem sýnir metnað og frumkvæði í starfi. Leitað er eftir einstaklingum sem er tilbúnir til að viðhalda og byggja upp öflugt skólasamfélag.

Hnoðraból er í nýju húsnæði við grunnskólann að Kleppjárnsreykjum í Reykholtsdal. Leikskólinn er tveggja deilda og þar dvelja að jafnaði um 30 börn og störfum við eftir hugmyndafræðinni Leiðtoginn í mér. Við skólann starfar samstillt og metnaðarfullt starfsfólk sem leggur áherslu á að mæta fjölbreytileika barnahópsins með virðingu og stuðla að vellíðan barna og góðum skólabrag.

HELSTU VERKEFNI OG ÁBYRGÐ

  • Leikskólakennari vinnur að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu leikskólakennara og stefnu sveitarfélagsins

MENNTUN OG HÆFNISKRÖFUR

  • Leikskólakennaramenntun
  • Góð færni í mannlegum samskiptum
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
    Skipulagshæfni, frumkvæði og metnaður
  • Góð íslenskukunnátta
  • Reynsla af menntun og uppeldi leikskólabarna

FREKARI UPPLÝSINGAR UM STARFIÐ

Vinnutími: Dagvinna.

Starfshlutfall: 100%.

Starfsvið: Fjölskyldusvið.

Umsóknarfrestur: 22. mars 2022.

Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eða samkvæmt nánara samkomulagi.

Umsóknir skulu berast í gegnum Alfreð. Umsókn skal fylgja náms- og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum ef við á. Umsókn fylgi einnig kynningarbréf. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag. Við hvetjum áhugasama um að sækja um óháð kyni og uppruna.

Nánari upplýsingar veitir Sjöfn G. Vilhjálmsdóttir leikskólastjóri, sjofn@borgarbyggd.is eða í síma 433-7180.


Share: