Laus störf hjá Landbúnaðarsháskóla Íslands

mars 17, 2023

Vakin er athygli á því að um þessar mundir eru eftirfarandi störf laus hjá LBHÍ:

Sumarstörf við Landbúnaðarháskóla Íslands á Hvanneyri

Opnað hefur verið fyrir umsóknir um sumarstörf og er starfstímabilið frá 15. maí til og með 18. ágúst. Um er að ræða útistörf.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Umhirða útisvæða
  • Viðhald fasteigna og/eða annarra innviða
  • Umsjón með ungmennum í vinnuskóla Borgarbyggðar
  • Almenn garðyrkjustörf, s.s. grassláttur, hirðing, illgresishreinsun, gróðursetning, vélavinna ásamt öðru tilfallandi sem tilheyrir garðyrkju

Hæfniskröfur

  • Umsækjendur skulu vera fæddir 2005 eða fyrr (18 ára og eldri)
  • Bílpróf
  • Vinnuvélaréttindi
  • Reynsla af umhirðu útisvæða og/eða garðyrkjustörfum
  • Stundvísi og samviskusemi

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sameyki hafa gert.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 24.03.2023

Nánari upplýsingar veitir

Guðmunda Smáradóttir, mannauðs- og gæðastjóri LbhÍ – gudmunda@lbhi.is – 433 5000
Jóhanna Gísladóttir, umhverfisstjóri LbhÍ – johannagisla@lbhi.is – 433 5000

Smelltu hér til að sækja um starfið


Lektor í skógfræði við Landbúnaðarháskóla Íslands

Laust er til umsóknar starf lektors í skógfræði við deild Náttúru og skóga hjá Landbúnaðarháskóla Íslands með áherslu á ræktun og nýtingu skóga og tengingu við sjálfbæra landnýtingu. Viðkomandi er ætlað að styrkja núverandi starf deildar á sviði rannsókna, kennslu og þjónustu við samfélagið. Hlutverk deildarinnar er að byggja brú á milli náttúru og samfélags með rannsóknum, kennslu, þjálfun og ráðgjöf á sviði sjálfbærrar landnýtingar og endurheimtar vistkerfa.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Uppbygging alþjóðlega viðurkenndra rannsókna á sviði skógfræði
  • Birting ritrýndra vísindagreina, öflun rannsóknarstyrkja og virk þátttaka í alþjóðlegu og innlendu samstarfi
  • Kennsla og þróun námskeiða á grunn- og framhaldsstigi
  • Leiðbeining nemenda í rannsóknarverkefnum
  • Virk þátttaka í faglegu þróunarstarfi og uppbyggingu innan skólans

Hæfniskröfur

  • Doktorspróf í skógfræði eða skyldum greinum
  • Reynsla af rannsóknum og þróun sem tengjast nýskógrækt, sjálfbærri nýtingu skóga eða loftslagsáhrifum.
  • Reynsla af kennslu og áhugi til fjölbreyttrar þekkingarmiðlunar á fræðasviðinu
  • Reynsla af þátttöku í rannsóknarverkefnum og öflun rannsóknarstyrkja
  • Umsækjandi hafi birt rannsóknir sínar á viðurkenndum alþjóðlegum vettvangi og hafi skýra framtíðarsýn á rannsóknum og þróun fræðasviðsins
  • Samstarfshæfni og lipurð í samskiptum
  • Íslenskukunnátta er æskileg

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 03.04.2023

Nánari upplýsingar veitir

Bjarni Diðrik Sigurðsson, deildarforseti Náttúru og skóga – bjarni@lbhi.is – 433 5000
Guðmunda Smáradóttir, mannauðs- og gæðastjóri – gudmunda@lbhi.is – 433 5000

Smelltu hér til að sækja um starfið


Lektor í landslagsarkitektúr við Landbúnaðarháskóla Íslands

Laust er til umsóknar starf lektors í landslagsarkitektúr við deild Skipulags og hönnunar hjá Landbúnaðarháskóla Íslands.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Byggja upp og innleiða alþjóðlega viðurkenndar rannsóknir á sviði landslagsarkitektúrs og skipulagsfræða
  • Birta ritrýndar vísindagreinar, afla rannsóknarstyrkja og taka virkan þátt í alþjóðlegu og innlendu samstarfi
  • Kennsla og þróun námskeiða á grunn- og framhaldsstigi
  • Leiðbeina nemendum í rannsóknaverkefnum
  • Taka virkan þátt í faglegu þróunarstarfi og uppbyggingu náms í landslagsarkitektúr og skipulagsfræðum

Hæfniskröfur

  • Doktorspróf í landslagsarkitektúr eða skyldum greinum
  • Reynsla af háskólakennslu, reynsla af stúdíókennslu æskileg
  • Rannsóknarvirkni á fræðasviðinu, sjálfstæði og skýr framtíðarsýn
  • Reynsla af þátttöku í rannsóknarverkefnum og öflun rannsóknastyrkja
  • Góð samstarfshæfni, skapandi hugsun og lipurð í samskiptum
  • Gott vald á ensku, jafnt töluðu sem rituðu máli
  • Gott vald á íslensku, jafnt töluðu sem rituðu máli æskileg

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.

Umsækjendur skulu láta fylgja umsókn sinni vottorð um námsferil sinn og störf, ritaskrá, skýrslu um vísindastörf og önnur störf sem þeir hafa unnið, kynningarbréf þar sem m.a. koma fram upplýsingar um rannsóknaráherslur og hugmyndir um kennsluaðferðir/þróun þekkingarmiðlunar á sviðinu.

Athygli er vakin á því að samkvæmt reglum LbhÍ er rektor heimilt að veita framgang í starf dósents eða prófessors strax við nýráðningu ef umsækjandi uppfyllir viðkomandi hæfnisviðmið.

Landbúnaðarháskóli Íslands áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.

Launakjör eru skv. kjarasamningum opinberra starfsmanna.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 03.04.2023

Nánari upplýsingar veitir

Samaneh Sadat Nickayin, deildarforseti Skipulags- og hönnunar – samaneh@lbhi.is – 433 5000
Guðmunda Smáradóttir, mannauðs- og gæðastjóri – gudmunda@lbhi.is – 433 5000

Smelltu hér til að sækja um starfið



Share: