Jarðræktarmiðstöð Hvanneyri – Auglýsing um niðurstöðu sveitarstjórnar Borgarbyggðar vegna skipulags

september 15, 2022

Sveitarstjórn Borgarbyggðar samþykkti þann 8.9.2022 eftirfarandi tillögur samkvæmt 32. gr. skipulagslaga nr. 123/2010:

Aðalskipulag Borgarbyggðar 2010-2022, Jarðræktarmiðstöð á Hvanneyri í Borgarbyggð

Breytingin tekur til landnotkunar á stækkunar á skilgreindri þjónustustofnun (Þ1) á Hvanneyri úr 1,1 ha í 3 ha þar sem fyrirhugað er að reisa nýja jarðræktarmiðstöð Landbúnaðarháskóla Íslands. Nýtingarhlutfall svæðisins er hækkað úr 0,05 í 0,35. Svæðið sem breytingin tekur til færist úr landbúnaði í þjónustustofnun

Tillagan er sett fram á uppdrætti, kort og greinargerð, Breyting á landnotkun fyrir jarðræktarmiðstöð á Hvanneyri dags. 28.01.2022 br. 16.08.2022.

Aðalskipulagsbreytingin hefur verið send Skipulagsstofnun sem sér um lokaafgreiðslu erindisins.

Þeir sem óska nánari upplýsinga um tillögunar og niðurstöðu sveitarstjórnar geta snúið sér til skipulags- og byggingardeildar Borgarbyggðar, Digranesgötu 2, Borgarnesi.

Nánari upplýsingar má nálgast á heimasíðu Borgarbyggðar á www.borgarbyggd.is

Vakin er athygli á málskotsrétti samkvæmt 52. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og lögum um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála nr. 130/2011 en þar kemur fram að stjórnvaldsákvarðanir má kæra til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála.

Þeir einir geta kært stjórnvaldsákvarðanir sem eiga lögvarða hagsmuni tengda þeirri ákvörðun sem kæra á. Kærufrestur er einn mánuður frá birtingu skipulagsáætlana í B-deild Stjórnartíðinda.

Sveitarstjórn Borgarbyggðar


Share: