Galtarholt 2 – Auglýsing um niðurstöðu sveitarstjórnar Borgarbyggðar vegna skipulags

nóvember 25, 2022

Sveitarstjórn Borgarbyggðar samþykkti þann 10. nóvember 2022 eftirfarandi tillögu samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010:

  • Aðalskipulag Borgarbyggðar 2010-2022, Galtarholt 2 í Borgarbyggð.

Aðalskipulag Borgarbyggðar 2010-2022

Breytingin felur í sér minnkun á frístundasvæði Galtarholts 2 (F32) um 1,3 ha yfir í landbúnaðarsvæði. Telst breytingin óveruleg.

Aðalskipulagsbreytingin hefur verið send Skipulagsstofnun sem sér um lokaafgreiðslu erindisins. 

Þeir sem óska nánari upplýsinga um tillögurnar og niðurstöðu sveitarstjórnar geta snúið sér til skipulags- og byggingardeildar Borgarbyggðar, Digranesgötu 2, Borgarnesi.

Nánari upplýsingar má nálgast á heimasíðu Borgarbyggðar á www.borgarbyggd.is

Vakin er athygli á málskotsrétti samkvæmt 52. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og lögum um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála nr. 130/2011 en þar kemur fram að stjórnvaldsákvarðanir má kæra til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála.

Þeir einir geta kært stjórnvaldsákvarðanir sem eiga lögvarða hagsmuni tengda þeirri ákvörðun sem kæra á. Kærufrestur er einn mánuður frá birtingu skipulagsáætlana í B-deild Stjórnartíðinda.

Sveitarstjórn Borgarbyggðar


Share: