Auglýst eftir stuðningsfjölskyldum

maí 8, 2023

Fjölskyldusvið Borgarbyggðar leitar eftir fjölskyldum sem eru tilbúnar að gerast stuðningsfjölskyldur. Hið mikilvæga hlutverk stuðningsfjölskyldna felst í því að taka á móti barni/börnum inn á heimilið í stuttan tíma, að jafnaði eina helgi í mánuði, með það að markmiði að styðja við foreldra og veita barninu/börnunum tilbreytingu og stuðning.

Nánari upplýsingar veitir Elísabet Jónsdóttir í síma 433-7100 og í tölvupósti elisabet.jonsdottir@borgarbyggd.is.


Share: