Auglýsing um niðurstöðu sveitarstjórnar Borgarbyggðar vegna skipulags

janúar 18, 2022

• Aðalskipulag Borgarbyggðar 2010-2022, Mávaklettur 10 í Bjargslandi, Borgarnesi.

Aðalskipulag Borgarbyggðar 2010-2022

Breytingin tekur til 0,1 ha svæðis í Bjargslandi Borgarnesi og er um að ræða breytingu á landnotkun, svæðið er skilgreint sem íbúðarsvæði í stað óbyggðs svæðis.

Tillaga að breytingu á Aðalskipulagi Borgarbyggðar 2010-2022 var auglýst frá 24. nóvember til 6. janúar 2022.

Athugasemdir bárust frá hagsmunaaðilum. Brugðist var við þeim eða þeim send umsögn.

Aðalskipulagsbreytingin hefur verið send Skipulagsstofnun sem sér um lokaafgreiðslu erindisins og mun taka gildi með auglýsingu í B-deild Stjórnartíðinda.

Þeir sem óska nánari upplýsinga um tillögunar og niðurstöðu sveitarstjórnar geta snúið sér til þjónustuvers Borgarbyggðar á Bjarnabraut 8, Borgarnesi eða skipulags- og byggingardeildar Borgarbyggðar, Digranesgötu 2, Borgarnesi.

Nánari upplýsingar má nálgast á heimasíðu Borgarbyggðar á www.borgarbyggd.is

Vakin er athygli á málskotsrétti samkvæmt 52. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og lögum um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála nr. 130/2011 en þar kemur fram að stjórnvaldsákvarðanir má kæra til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála.

Þeir einir geta kært stjórnvaldsákvarðanir sem eiga lögvarða hagsmuni tengda þeirri ákvörðun sem kæra á. Kærufrestur er einn mánuður frá birtingu skipulagsáætlana í B-deild Stjórnartíðinda.

Aðalskipulagsbreyting

Sveitarstjórn Borgarbyggðar


Share: