Sérkennslustjóri á leikskólanum Andabæ, Hvanneyri

júní 5, 2020
Featured image for “Sérkennslustjóri á leikskólanum Andabæ, Hvanneyri”

Um er að ræða 75% stöðu sérkennslustjóra og 25% starf við önnur verkefni er varða sérkennslu.

Sérkennslustjóri starfar samkvæmt lögum og reglugerð um leikskóla, lögum um málefni fatlaðra og öðrum lögum sem við eiga, aðalnámskrá leikskóla, stefnu viðkomandi sveitarfélags og skólanámskrá leikskólans.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Ber ábyrgð á og stjórnar skipulagningu, framkvæmd og endurmati sérkennslunnar ásamt leikskólastjóra.
  • Er faglegur umsjónarmaður sérkennslu, annast frumgreiningu og ráðgjöf til annarra starfsmanna leikskóla
  • Ber ábyrgð á miðlun upplýsinga milli sérkennsluráðgjafa/sérkennslufulltrúa leikskóla og starfsmanna leikskólans.
  • Hefur umsjón með uppeldis- og námsgögnum leikskólans sem tengjast sérkennslu.

Hæfniskröfur:

  • Leikskólakennaramenntun, þroskaþjálfamenntun eða önnur sambærileg menntun sem nýtist í starfi
  • Framhaldsmenntun í sérkennslufræðum æskileg
  • Reynsla af sérkennslu
  • Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
  • Frumkvæði, áhugi og metnaður í starfi
  • Góð íslenskukunnátta.

Starfslýsing sérkennslustjóra

Ráðið er í starfið frá og með 6. ágúst 2020 eða eftir nánara samkomulagi.

Við hvetjum áhugasama til að sækja um óháð kyni og uppruna.

Umsóknarfrestur er til og með 5. júlí 2020.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við viðkomandi sveitafélag.

Umsóknir ásamt ferilskrá skulu sendar rafrænt á andabaer@borgarbyggd.is

Nánari upplýsingar veitir Ástríður Guðmundsdóttir leikskólastjóri, asta@borgarbyggd.is Einnig er hægt að hafa samband í s:433-7170 / 846-4341

 


Share: