Vorskóli Grunnskólans í Borgarnesi

apríl 19, 2016

Dagana 26.-28. apríl verður vorskóli fyrir börn fædd 2010 og eiga að hefja skólagöngu í haust. Til að kynna fyrirkomulag vorskólans er boðað til fundar miðvikudaginn 20. apríl kl. 18:00 – 18:40, í stofu 1. bekkjar – á neðri hæð skólans – inngangur fjærst bílastæðum. Þar verður kynnt stundaskrá vorskólans og foreldrar fá í hendur spurningalista sem þeir eru beðnir að skila til kennara þegar þeir koma með börnin í skólann.
Þeir sem komast ekki á fundinn, vinsamlega látið mig vita með því að senda tölvupóst á netfangið kristine@grunnborg.is


Share: