Vinnuskóli Borgarbyggðar – sumarstörf 2011

apríl 19, 2011
Vinnuskóli Borgarbyggðar óskar eftir umsóknum nemenda fyrir sumarið 2011.
Vinnuskólinn er fyrir unglinga í 8. – 10. bekk og verður settur mánudaginn 6. júní n.k. kl. 9.00 í Félagsmiðstöðinni Óðali.
Vinnutímabil skólans verður 4 vikur eða frá 6. júní til og með 5. júlí 2011. Daglegur vinnutími er frá kl. 8:30 – 16:00 alla virka daga nema föstudaga en þá er unnið til kl. 12:00. Vinnuskólinn verður með starfsstöðvar á fjórum stöðum í sveitarfélaginu:
 
· Á Hvanneyri undir stjórn Kára Aðalsteinssonar garðyrkjustjóra Landbúnaðarháskólans.
Hafa má samband við Kára í síma 433-5000 eða á netfangið kari@lbhi.is
· Á Bifröst undir stjórn Halldóru Jónsdóttur umsjónarmanns húsnæðis hjá Háskólanum.
Hafa má samband við Halldóru í síma 433-3000 eða á netfangið halldora@bifrost.is
· Í Reykholti undir stjórn Tryggva Konráðssonar staðarráðsmanns.
Hafa má samband við Tryggva í síma 894-5150 eða á netfangið tryggvi@snorrastofa.is
· Í Borgarnesi undir stjórn Sigurþórs Kristjánssonar verkstjóra vinnuskólans.
Hafa má samband við Sigurþór í síma 892-7970 eða á netfangið sissi@borgarbyggd.is
Umsóknareyðublöð fást í Ráðhúsi Borgarbyggðar Borgarbraut 14, Borgarnesi og á skrifstofu sveitarfélagsins að Litla-Hvammi í Reykholti en einnig má nálgast umsóknareyðublöðin á heimasíðu sveitarfélagsins www.borgarbyggd.is

Nánari upplýsingar gefa Sigurþór Kristjánsson verkstjóri vinnuskólans í síma 892-7970 eða á netfangið sissi@borgarbyggd.is og Jökull Helgason forstöðumaður framkvæmdasviðs í síma 433-7100 eða á netfagnið jokull@borgarbyggd.is

Umsóknarfrestur er til föstudagsins 6. maí n.k.
 

Share: