Vinnuskóli Borgarbyggðar sumarið 2014

apríl 22, 2014
Vinnuskóli Borgarbyggðar óskar eftir umsóknum nemenda fyrir sumarið 2014
Vinnuskólinn er fyrir unglinga í 8. – 10. bekk og verður settur þriðjudaginn 3. júní n.k. kl. 9.00 í Félagsmiðstöðinni Óðali.
 
Vinnutímabil skólans verður 5 vikur á 7 vikna tímabili (hver og einn nemandi velur sínar vinnuvikur) eða frá 3. júní til og með 18. júlí 2014. Daglegur vinnutími er frá kl. 8.30 – 16.00 mánudaga til og með fimmtudaga. Frí á föstudögum.
 
Hér má sjá auglýsingu frá vinnuskólanum.
Hér má nálgast umsóknareyðublað vinnuskólans.
 
Vinnuskólinn verður með starfsstöðvar á fjórum stöðum í sveitarfélaginu:
 
Á Hvanneyri undir stjórn Kára Aðalsteinssonar garðyrkjustjóra Landbúnaðarháskólans. Hafa má samband við Kára í síma 433 5000 eða á netfangið kari@lbhi.is
Á Bifröst undir stjórn Margrétar Vagnsdóttur umsjónarmanns húsnæðis hjá Háskólanum. Hafa má samband við Margréti í síma 433 3000 eða á netfangið husnaedi@bifrost.is
Í Reykholti undir stjórn Tryggva Konráðssonar staðarráðsmanns. Hafa má samband við Tryggva í síma 894 5150 eða á netfangið tryggvi@snorrastofa.is
Í Borgarnesi undir stjórn Sigurþórs Kristjánssonar verkstjóra vinnuskólans. Hafa má samband við Sigurþór í síma 892 7970 eða á netfangið sissi@borgarbyggd.is
Umsóknareyðublöð fást í Ráðhúsi Borgarbyggðar, Borgarbraut 14, Borgarnesi og á skrifstofu sveitarfélagsins að Litla-Hvammi í Reykholti en einnig má nálgast umsóknareyðublöðin á heimasíðu sveitarfélagsins www.borgarbyggd.is
Umsóknum má skila í Ráðhúsi Borgarbyggðar og í Litla-Hvammi.
 
Nánari upplýsingar gefa Sigurþór Kristjánsson verkstjóri vinnuskólans í síma 892 7970 eða á netfangið sissi@borgarbyggd.is og Jökull Helgason forstöðumaður Umhverfis- og skipulagssviðs í síma 433 7100 eða á netfangið jokull@borgarbyggd.is
Umsóknarfrestur er til föstudagsins 2. maí n.k.
Jökull Helgason
Forstöðumaður umhverfis- og skipulagssviðs
 

Share: