Vel heppnað Æskulýðsball í Borgarbyggð

nóvember 24, 2022
Featured image for “Vel heppnað Æskulýðsball í Borgarbyggð”

Þann 17. nóvember sl. var Æskulýðsballið haldið í Hjálmakletti. Um er að ræða viðburður sem félagsmiðstöðin Óðal stendur fyrir árlega fyrir öll ungmenni á Vesturlandi.

Um 320 ungmenni mættu í Borgarnes til þess að skemmta sér saman, en Dj Egill Spegill og Herra Hnetusmjör sáu um að halda uppi fjörinu. Þá er gaman að segja frá því að 113 ungmenni mættu frá Óðal af þeim 147 sem búa í Borgarbyggð.

Óhætt er að segja að ballið hafi heppnast afar vel og það var ekki annað að sjá en að allir hafi skemmt sér konunglega. Eina gagnrýnin sem heyrðist eftir ballið var að viðburðurinn mætti vera oftar á ári.

Starfsfólk Óðals vilja þakka foreldrum fyrir samstarfið á ballinu en hópurinn var vel sýnilegir á viðburðinum og einnig  hafaforeldraröltin verið virkjuð á ný. Hópurinn stóð einnig vaktina í sjoppunni og hjálpuð til við gæslu inn á ballinu. Það er dýrmætt að eiga góð samskipti við foreldra.


Share: