Útboð á tryggingum Borgarbyggðar kært

nóvember 25, 2019
Featured image for “Útboð á tryggingum Borgarbyggðar kært”

Útboð á tryggingum Borgarbyggðar var kært til kærunefndar útboðsmála. Í kjölfarið hefur skilafrestur á tilboðum verið framlengdur til 16. desember kl. 13:30.

Borgarbyggð óskar eftir tilboðum í vátryggingar fyrir tímabilið 2020 – 2022

Um er að ræða eftirfarandi tryggingar:

Lög- og samningsbundnar tryggingar:

  • Brunatrygging fasteigna.
  • Ábyrgðartrygging ökutækja.
  • Slysatrygging launþega.

 Aðrar tryggingar

  • Húseigendatryggingar.
  • Lausafjártryggingar.
  • Húftrygging vinnvéla
  • Kaskótrygging ökutækja
  • Ábyrgðartrygging atvinnureksturs.
  • Slysatryggingar barna til 18 ára aldurs í skóla- og tómstundastarfi.
  • Slysatryggingar
  • Hópslysatryggingar
  • Líftryggingar slökkviliðsmanna

Útboðsgögn er hægt að fá með því að senda tölvupóst á gudmundurm@consello.is frá og með miðvikudeginum 23.10.2019 kl 8:00.

Tilboðum skal skila á skrifstofu Borgarbyggðar, Borgarbraut 14, 310 Borgarnes fyrir kl. 13:30, mánudaginn 16.12.2019 og verða þau opnuð þar í viðurvist þeirra bjóðenda sem þar mæta.

Heimilt er að skila tilboðum með  tölvupósti á opnunarstað tilboða, ef þau berast áður en skilafrestur tilboða rennur út enda hafi öll gögn, sem fylgja eiga tilboði, verið póstlögð með ábyrgðarsendingu a.m.k. degi áður en opnun tilboða fer fram.

 


Share: