Upplýsingar um Vinnuskóla Borgarbyggðar

apríl 29, 2020
Featured image for “Upplýsingar um Vinnuskóla Borgarbyggðar”

Vinnuskóli Borgarbyggðar mun starfa frá 8. júní til 31. júlí sumarið 2020. Leitast verður við að veita öllum 13-16 ára (7.-10. bekkur) unglingum búsettum í Borgarbyggð starf í Vinnuskólanum.

Vinnuskólinn starfar samkvæmt samþykktum Borgarbyggðar en ekki samkvæmt lögskipaðri námskrá. Ekki er skólaskylda í Vinnuskólanum.

Starfsstöðvar Vinnuskólans verða á Bifröst, í Borgarnesi, á Hvanneyri og í Reykholti.

Þeir sem sjá um verkstjórn í Vinnuskólanum í Reykholti er Snorrastofa, á Hvanneyri er það Landbúnaðarháskóli Íslands og á Bifröst er það Háskólinn á Bifröst.

Ásamt því að vinna við almenn garðyrkjustörf geta nemendur óskað eftir því að vinna eftirfarandi störf, en stefnt er að því að allir nemendur í 8.-10. bekk prófi önnur verkefni í 1-2 vikur yfir tímabilið. Þeir sem eru í 7. bekk geta sett inn sínar óskir en eldri ungmenni ganga fyrir. Þegar við hittumst á fyrsta degi Vinnuskólans þann 8. júní munu allir fá nánari upplýsingar um þennan hluta.

Hafið í huga að vinnuskólanemendum er velkomið að óska eftir verkefnum á öðrum starfsstöðvum en það er þá á ábyrgð foreldra að koma þeim á réttan stað og sækja að vinnudegi loknum. Þau verkefni sem hægt er að óska eftir ásamt almennri garðyrkju eru:

Hvanneyri

  • Leikskólinn Andabær
  • Sumarfjör
  • Hvanneyrarbúið
  • Skapandi sumarhópur
  • Við að leggja stund á íþróttir, tómstundir og listir.

Borgarnes

  • Leikskólinn Ugluklettur og Klettaborg
  • Safnahús
  • Hjá íþróttafélögum og á íþróttavellinum
  • Skallagrímsgarður
  • Skapandi sumarhópur
  • Sumarfjöri
  • Við að leggja stund á íþróttir, tómstundir og listir.

Reykholt

  • Leikskólinn Hnoðraból
  • Snorrastofa
  • Skapandi sumarhópur
  • Við að leggja stund á íþróttir, tómstundir og listir.

Bifröst

  • Leikskólinn Hraunborg
  • Golfvöllurinn Glanni
  • Háskólinn á Bifröst.
  • Skapandi sumarhópur
  • Við að leggja stund á íþróttir, tómstundir og listir.

Efnileg ungmenni sem stunda íþróttir, tómstundir og listir geta fengið að sinna sínum tómstundum á launum. Markmið Borgarbyggðar með þessu er að koma til móts við þau ungmenni sem geta ekki með sama hætti og jafnaldrar þeirra unnið sumarvinnu hjá Borgarbyggð. Nánari upplýsingar og reglur finnið þið inn á heimasíðu Borgarbyggðar. Sótt er um á þjónustugáttinni á sama umsóknareyðublaði og hjá Vinnuskólanum. Muna að skila inn öllum fylgigögnum svo umsókn verði tekin gild.

Yfir sumarið eru 4-5 dagar tileinkaðir samveru, skemmtun og forvarnarvinnu. Ferð verður farin í lok sumars sem er skipulögð af ungmennunum sjálfum.

Forráðamenn skrá unglinga í Vinnuskólann, mikilvægt að taka fram í umsókn ef það er eitthvað sem flokkstjórar þurfa að fá að vita t.d ofnæmi eða greiningar.

Skráning fer fram í Þjónustugátt Borgarbyggðar, opnað var fyrir umsóknir 27.apríl.


Share: