Uppeldisnámskeið fyrir foreldra yngri barna

október 1, 2007

Í samvinnu við heilsugæsluna stendur sveitarfélagið Borgarbyggð að uppeldisnámskeiði fyrir foreldra yngri barna. Námskeiðin hófust í fyrra og hefur áhugi á þeim farið stigvaxandi.
Í haust skráðu 20 manns sig á yfirstandandi námskeiðið sem hófst 26. september og lýkur 17. október. Uppeldisnámskeiðið er samið af Miðstöð heilsuverndar barna og ber heitið „Uppeldi sem virkar, færni til framtíðar“.

Það er í höndum Ásþór Ragnarssonar sálfræðings hjá sérfræðiþjónustu skóla og Dagnýjar Hjálmarsdóttur hjúkrunarfræðings sem bæði hafa réttindi sem leiðbeinendur á slíkum námskeiðum.

Einnig verður svipað námskeið fyrir allt starfsfólk leikskóla í sveitarfélaginu á starfsdegi þeirra 12. nóvember.
Mynd tekin úr námskeiðsgögnum Ásþórs Ragnarssonar.

 
 

Share: