Umhverfisviðurkenningar – Tilnefningar skulu berast fyrir 31. ágúst

ágúst 30, 2021
Featured image for “Umhverfisviðurkenningar – Tilnefningar skulu berast fyrir 31. ágúst”

Árlega veitir Borgarbyggð viðurkenningar í umhverfismálum. Auglýst var eftir tilnefningum frá íbúum 29. júlí sl. og er síðasti dagurinn til þess að skila inn 31. ágúst nk. 

Veittar eru viðurkenningar fyrir lóð við íbúðarhús, lóð við atvinnuhúsnæði, bændabýli auk samfélagsviðurkenningar til einstaklinga, hópa eða fyrirtækja sem vakið hefur athygli fyrir störf að umhverfismálum. 

Hægt er að senda tilnefningar rafrænt eða með tölvupósti á borgarbyggd@borgarbyggd.is

Hér má nálgast tengil til að senda inn tilnefningar.

 

 


Share: