Umhverfisviðurkenningar – tilnefningar

júní 6, 2023
Featured image for “Umhverfisviðurkenningar – tilnefningar”

Umhverfis- og landbúnaðarnefnd veitir árlega viðurkenningar fyrir snyrtilegar og fallegar lóðir og hvetur íbúa til að taka þátt í að gera ásýnd sveitarfélagsins sem besta.

Veittar verða umhverfisviðurkenningar í eftirfarandi fjórum flokkum:

1. Snyrtilegt bændabýli
2. Falleg lóð við íbúðarhús
3. Snyrtileg lóð við atvinnuhúsnæði
4. Samfélagsviðurkenning umhverfis- og landbúnaðarnefndar vegna umhverfismála.

Óskað er eftir tilnefningum í áðurnefndum flokkum og skal senda tilnefningu eigi síðar en 20. ágúst 2023.

Senda tilnefningu hér


Share: