Sumarlestur á Héraðsbókasafninu

júní 9, 2010
Sumarlestur eftir Elínu E. Einarsdóttur
Nú í sumar efnir Héraðsbókasafn Borgarfjarðar til sumarlesturs fyrir börn á aldrinum 6-12 ára, í þriðja sinn. Tímabil sumarlesturs er frá 10. júní – 10. ágúst.
Markmiðið með verkefninu, er að nemendur viðhaldi og þjálfi þá lestrarleikni sem þeir hafa tileinkað sér í skólunum yfir veturinn.
Verkefnið er þátttakendum að kostnaðarlausu.
 
Börn á þessum aldri skrá sig í sumarlesturinn á bókasafninu og fá þá um leið skjal þar sem skráðar eru þær bækur sem viðkomandi barn les á ofangreindu tímabili. Þegar bók er aftur skilað á bókasafnið er stimplað við hvern titil og nafn þátttakenda sett á miða í pott sem dregið verður úr í lok sumars á sérstakri uppskeruhátíð í Safnahúsi þar sem einhverjir heppnir lestrarhestar hljóta vinning.
 

Opið verður á bókasafninu alla virka daga í sumar frá kl. 13.00-18.00
Öll börn geta gerst lánþegar. Æskilegt er að þau yngstu komi í fylgd fullorðinna fyrstu skiptin.
Þátttaka í þessu verkefni hefur verið góð undanfarin tvö ár og gaman hefur verið að fá krakkanna í heimsókn í lok sumars. Gaman væri líka að slá fyrri met hvað varðar fjölda þátttakenda í ár.
Starfsfólk safnsins hlakkar til að sjá sem flesta krakka á safninu í sumar.


Share: