Styrkir til greiðslu fasteignaskatts til félaga og félagasamtaka 2016-04

apríl 27, 2016

Sveitarstjórn Borgarbyggðar samþykkti þann 16. maí 2007 reglur um styrki til greiðslu fasteignaskatts til félaga og félagasamtaka skv. 2. mgr. 5. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga nr. 4/1995. Félög og félagasamtök geta nú sótt um styrk til greiðslu fasteignaskatts fyrir árið 2016. Umsóknarfrestur er til 1. maí 2016 og skal öllum umsóknum skilað til fjármálastjóra. Umsóknareyðublöð liggja frammi í Ráðhúsi Borgarbyggðar í Borgarnesi og á heimasíðu Borgarbyggðar.


Share: