Styrkir til greiðslu fasteignaskatts til félaga og félagasamtaka

mars 20, 2017
Featured image for “Styrkir til greiðslu fasteignaskatts  til félaga og félagasamtaka”

Sveitarstjórn Borgarbyggðar samþykkti þann 16. maí 2007 reglur um styrki til greiðslu fasteignaskatts til félaga og félagasamtaka skv. 2. mgr. 5. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga nr. 4/1995.

Félög og félagasamtök geta nú sótt um styrk til greiðslu fasteignaskatts fyrir árið 2017.  Umsóknarfrestur er til 1. maí 2017 og skal öllum umsóknum skilað til fjármálastjóra.

Reglur og umsóknareyðublöð liggja frammi í Ráðhúsi Borgarbyggðar í Borgarnesi og á heimasíðu Borgarbyggðar www.borgarbyggd.is


Share: