Styrkir til greiðslu fasteignaskatts til félaga og félagasamtaka

febrúar 19, 2019
Featured image for “Styrkir til greiðslu fasteignaskatts  til félaga og félagasamtaka”

Sveitarstjórn Borgarbyggðar samþykkti þann 16. maí 2007 reglur um styrki til greiðslu fasteignaskatts til félaga og félagasamtaka skv. 2. mgr. 5. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga nr. 4/1995.

Félög og félagasamtök geta nú sótt um styrk til greiðslu fasteignaskatts fyrir árið 2019.

Umsóknarfrestur er til 1. maí 2019 og skal umsóknum skilað til fjármálastjóra.

Reglur og umsóknareyðublöð liggja frammi í Ráðhúsi Borgarbyggðar í Borgarnesi og á heimasíðu Borgarbyggðar www.borgarbyggd.is


Share: