Styrkir til greiðslu fasteignaskatts til félaga og félagasamtaka

febrúar 25, 2022
Featured image for “Styrkir til greiðslu fasteignaskatts  til félaga og félagasamtaka”

Sveitarstjórn Borgarbyggðar samþykkti þann 16. maí 2007 reglur um styrki til greiðslu fasteignaskatts til félaga og félagasamtaka skv. 2. mgr. 5. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga nr. 4/1995.

Félög og félagasamtök geta nú sótt um styrk til greiðslu fasteignaskatts fyrir árið 2022. Umsóknarfrestur er til 1. maí 2022 og skal umsóknum skilað í gegnum heimasíðu Borgarbyggðar eða til sviðsstjóra fjármálasviðs.

Reglur og umsóknareyðublöð liggja frammi í Ráðhúsi Borgarbyggðar í Borgarnesi og á heimasíðu Borgarbyggðar www.borgarbyggd.is

 


Share: