
Stóri Plokkdagurinn verður haldinn hátíðlegur sunnudaginn 27. apríl næstkomandi um allt land. Þetta er árlegur viðburður þar sem einstaklingar, hópar, félagasamtök og sveitarfélög taka höndum saman í þágu umhverfisins með því að plokka rusl í sínu nærumhverfi.
Íbúar eru hvattir til að plokka í sínu nærumhverfi. Ef fólk vill safnast saman þá munu félagar í Rotary vera við Hjálmaklett í Borgarnesi og við Húsafell Bistro kl. 10 um morguninn og þar verður hægt að sækja glæra poka fyrir plokkið.
Það er Rótarýhreyfingin á Íslandi sem skipuleggur daginn með dyggri aðstoð góðra bakhjarla. Markmiðið er að hvetja sem flesta til að taka þátt í hreinsunarátaki og stuðla að fegurra og hreinna umhverfi. Allir sem vilja geta tekið þátt á Stóra Plokkdaginn eða skipulagt hreinsunarverkefni á svipuðum tíma.
Tökum höndum saman og gerum umhverfið okkar hreinna og fallegra á Stóra Plokkdaginn!
Mánudaga – föstudaga: 14:00 – 18:00
Laugardaga: 10:00 – 14:00
Sunnudaga: 14:00 – 18:00