Borgarbyggð óskar eftir tilboðum í sorphirðu í sveitarfélaginu fyrir heimili í þéttbýli og dreifbýli,
umsjón grenndarstöðva, rekstur móttökustöðva, og flutning sorps.
Útboð þetta er auglýst á EES svæðinu.
Helstu magntölur:
Sorpílát í þéttbýli 1.600 stk
Sorpílát í dreifbýli 600 stk
Grenndarstöðvar 14 stk
Sorp frá heimilum 700 tonn/ári
Sorp frá grenndarstöðvum 1.000 tonn/ári
Sorp frá móttökustöð 900 tonn/ári
Verktími er 1. september 2017 til 31. ágúst 2022.
Útboðsgögn eru afhent á stafrænu formi með því að senda tölvupóst með ósk þar um, þar sem fram kemur nafn, netfang og símanúmer, á netfangið akranes.utbod@mannvit.is.
Tilboð verða opnuð í ráðhúsi Borgarbyggðar, Borgarbraut 14, 310 Borgarnes, þriðjudaginn 18 apríl 2017 kl. 11.00