Slökkvilið Borgarbyggðar útskrifar 19 nýliða

apríl 11, 2022
Featured image for “Slökkvilið Borgarbyggðar útskrifar 19 nýliða”

Um helgina luku 19 nýliðar sex mánaða æfingarferli Slökkviliðs Borgarbyggðar. Auk þess er gaman að segja frá því að stór hluti hópsins lauk einnig grunnmenntun slökkviliðsmanna hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun, sem sér um löggildingar slökkviliðsmanna.

Þessi hópur sem útskrifaðist um helgina er nú kominn á útkallaskrá slökkviliðsins.

Borgarbyggð óskar þessum flotta hópi innilega til hamingju með árangurinn.

Ljósmyndir: Rolando Diaz

Share: