Skipulagsauglýsing – athafnasvæðið á Hvanneyri í Borgarbyggð

nóvember 27, 2007

Skipulagsauglýsing um breytingu á gildandi deiliskipulagi athafnasvæðis á Hvanneyri, Borgarbyggð.

Í samræmi við 26. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 hefur sveitarstjórn Borgarbyggðar samþykkt að auglýsa eftirfarandi deiliskipulagbreytingu:
Breytingartillagan er sú að frá gildandi deiliskipulagi er bætt við 14 nýjum athafnalóðum austur af íbúðarhverfi Hvanneyrar. Á svæðinu eru nú þegar hús Stofnunga og verkstæði Jörfa ehf.
Tillagan verður til sýnis í Ráðhúsi Borgarbyggðar Borgarbraut 14 Borgarnesi frá 27. nóvember til 27. desember og frestur til að skila inn athugasemdum rennur út 10. janúar 2008.
Skila skal skriflegum athugasemdum til skipulags- og bygginganefndar í Ráðhús Borgarbyggðar Borgarbraut 14 311 Borgarnes.
Þeir sem ekki gera athugasemd við tillöguna teljast henni samþykkir.
 
 

Share: