“Séra Magnús” – ný sýning í Safnahúsi

maí 5, 2011
Föstudaginn 13. maí næstkomandi verður opnuð ný sýning í Safnahúsi í tilefni af 50 ára afmæli Héraðsskjalasafnsins. Sýningin hefur hlotið heitið Séra Magnús og er um ævi Magnúsar Andréssonar (1845-1922) sem bjó á Gilsbakka í Hvítársíðu frá árinu 1881, ásamt sinni mætu konu Sigríði Pétursdóttur.

Séra Magnús var m.a. alþingismaður Mýramanna um margra ára skeið og kom þar að mótun sjálfstæðisbaráttu Íslendinga um og eftir 1900. Af þessu tilefni er sýningin helguð minningu Jóns Sigurðssonar á merku afmælisári hans.

Sýningin verður opnuð með stuttri athöfn á neðri hæð Safnahúss (Börn í 100 ár) kl. 17.30 þennan dag, föstudaginn 13. maí.


Share: