
Vegna stækkunar á dreifikerfi verður tímabundið rafmagnsleysi á ákveðnum svæðum í Borgarnesi, aðfaranótt 13. maí næstkomandi.
- Rafmagnslaust verður í suðurhluta Borgarness frá kl. 23:59 þann 12. maí til kl. 1:00 þann 13. maí.
- Einnig verður rafmagnslaust við Digranesgötu í Borgarnesi frá kl. 23:59 þann 12. maí til kl. 4:00 þann 13. maí.
Athygli er vakin á því að mögulega getur rafmagn komið á í stuttan tíma meðan á framkvæmdum stendur vegna prófana.
Nánari upplýsingar veitir stjórnstöð RARIK í síma 528 9000. Kort af áhrifasvæðum má finna á rofakorti RARIK.
