Pálsstefna vel sótt

júní 23, 2009
Um 60 manns sóttu Pálsstefnu í Borgarnesi á laugardaginn, en þar var verið að minnast bókavinarins Páls Jónssonar frá Örnólfsdal í Þverárhlíð sem lést árið 1985. Páll var fæddur 20. júní 1909 og var málþingið því haldið á 100 ára afmæli hans, en hann gaf merkt bókasafn sitt í Borgarnes á sínum tíma. Það voru helstu hugðarefni Páls sem tekin voru fyrir á þinginu: bókasöfnun, ljósmyndun og ferðalög. Þingið var haldið í hátíðarsal Menntaskóla Borgarfjarðar sem reyndist hin besta umgjörð utan um slíkan minningardag. Viðburður þessi var haldinn af Safnahúsi Borgarfjarðar og Landbókasafni Íslands, í samvinnu við Héraðsskjalasafn Skagafjarðar og Ferðafélag Íslands og Menningarráð Vesturlands styrkti málefnið.
Að þinginu loknu fór hluti ráðstefnu gesta í gönguferð um Örnólfsdal sem farin var í boði Ferðafélags Íslands og í minningu Páls.
Myndir: Guðrún Jónsdóttir
 
 

Share: