Nýir kjarasamningar leiða til styttri vinnuviku í sveitarfélaginu

október 16, 2024
Featured image for “Nýir kjarasamningar leiða til styttri vinnuviku í sveitarfélaginu”

Þann 1. nóvember næstkomandi taka gildi nýir kjarasamningar Visku, Kjalar og Stéttafélags Vesturlands við Samband íslenskra sveitarfélaga, munu þessar breytingar hafa veruleg áhrif á vinnuumhverfið í sveitarfélaginu. Langstærsta breytingin felst í styttingu vinnuvikunnar úr 40 tímum í 36 tíma, munu þessar breytingar m.a. koma til með að hafa áhrif á fjölmarga starfsmenn í skólum og leikskólum.

Borgarbyggð stendur frammi fyrir því að ákveða hvernig eigi að bregðast við þessari breytingu sem mun hafa áhrif á bæði heimili og atvinnulíf í sveitarfélaginu. Í því skyni hefur sveitarfélagið ákveðið að boða til fundar með atvinnurekendum til að ræða áhrif kjarasamningsins og heyra sjónarmið atvinnulífsins.

Fundurinn fer fram á 3. hæð Ráðhússins, Digranesgötu 2, mánudaginn 21. október kl. 12.00. Léttur hádegisverður verður í boði fyrir fundargestina.

Borgarbyggð hvetur alla atvinnurekendur til að mæta og taka þátt í þessum mikilvægu umræðum.


Share: