
Borgarbyggð tekur í gegnum starfsemi Safnahúss Borgarfjarðar þátt í tvenns konar menningardagskrá á landsvísu í ár, annars vegar með tónleikum sem hluta af afmælisdagskrá fullveldisins og hins vegar með sýningu um Hvítárbrúna nú í nóvember, en það verkefni er þáttur í viðburðaskrá Menningararfsárs Evrópu. Það er Minjastofnun sem heldur utan um þá dagskrá hér á landi. Tónleikarnir voru haldnir í apríl í samvinnu við afmælisnefnd um Fullveldisárið, undir merkjum verkefnisins „Að vera skáld og skapa“ í samstarfi við Tónlistarskóla Borgarfjarðar sem einnig er stofnun á vegum sveitarfélagsins.
Fjölbreytt vetrardagskrá Safnahúss er nú hafin, með opnun sýningar á myndverkum Steinunnar Steinarsdóttur 1. september og myndamorgni og fyrirlestri Sigrúnar Elíasdóttur um fantasíur og vísindaskáldsögur 13. september s.l.
Fimmtudaginn 1. nóv. n.k. kl. 19.30 verður sýningin um Hvítárbrúna opnuð, enda fór vígsla hennar fram þennan sama dag árið 1928. Sýningarstjóri er Helgi Bjarnason frá Laugalandi í Stafholtstungum. Heiður Hörn Hjartardóttir er hönnuður sýningarinnar. Viðburðurinn er eins og áður sagði hluti af dagskrá Menningararfsárs Evrópu 2018 og er verkefnið unnið í samvinnu við Minjastofunun ríkisins og er helgað minningu Þorkels Fjeldsted, fyrrum bónda í Ferjukoti í Borgarhreppi. Verkefnið er stutt af Kaupfélagi Borgfirðinga.
Á myndamorgnum vetrarins verða gestir beðnir að aðstoða skjalasafnið við að greina ljósmyndir. Sá næsti verður 18. október kl. 10.30, en eftir áramót verður tímasetningunni breytt í 10.00.
Fimmtudaginn 6. desember verður aðventuopnun í Safnahúsi, þá verður m.a. lengd opnun á bókasafni og þýðing Magnúsar Ásgeirssonar á Aðventu Gunnars Gunnarssonar lesin af sjálfboðaliðum.
Þrír fyrirlestrar verða haldnir eftir áramót og er það mikið tilhlökkunarefni. Nánar verður sagt frá þeim síðar, en þeir eiga það sameiginlegt að vera um efni af fagsviðum safnanna.
Laugardaginn 16. mars verður opnuð sýning á verkum myndlistarkonunnar Josefinu Morell, en hún er verðugur fulltrúi þeirrar gróskumiklu myndlistarstarfsemi sem fer fram í héraðinu.
Sumarsýning Safnahúss 2019 (opnuð 18. maí) verður úr safni Hallsteins Sveinssonar (Listasafn Borgarness) og annast Helena Guttormsdóttir myndlistarmaður val efnis og sýningarstjórn.
Haustið 2019 hefst svo aftur lífleg vetrardagskrá sem þegar hafa verið lögð drög að. Viðburðaskrá þess árs verður bráðlega birt í heild sinni á heimasíðu Safnahúss (www.safnahus.is) ásamt nánari fróðleik.
Starfsfólk Safnahúss þakkar ánægjulegt samstarf við þá fjölmörgu aðila sem komið hafa að starfsemi hússins það sem af er ári og er Uppbyggingarsjóði Vesturlands sérstaklega þakkaður stuðningur við viðburði ársins í heild sinni.