Menningarsjóður Borgarbyggðar auglýsir eftir umsóknum

apríl 3, 2023
Featured image for “Menningarsjóður Borgarbyggðar auglýsir eftir umsóknum”

Tilgangur sjóðsins er að efla menningu í Borgarbyggð og er sérstök rækt lögð við grasrót í menningarlífi. Lögð er áhersla á að styrkja einstaklinga og félagasamtök í Borgarbyggð.

Umsókninni þarf að fylgja sundurliðuð kostnaðaráætlun fyrir verkefnið ásamt greinargerð.

Styrkþegar frá fyrri útlutun eru minntir á að skila inn skýrslu um framgang og lok verkefnis fyrir næstu styrkveitingu. Skýrsluskil eru skilyrði fyrir styrkveitingu til nýrra verkefna. Umsækjendur eru hvattir til að kynna sér reglur sjóðsins áður en umsókn er lögð inn.

Sótt er um rafrænt í gegnum þjónustugáttina inn á borgarbyggd.is.

Umsóknarfrestur er til og með 23. apríl 2023.

Nánari upplýsingar veitir Þórunn Kjartansdóttir, thorunn.kjartansdottir@borgarbyggd.is eða í síma 433-7100.


Share: