Matjurtagarðar í sumar

apríl 23, 2013
Íbúum Borgarbyggðar gefst, líkt og undanfarin ár, kostur á að taka á leigu matjurtagarða í Borgarnesi í sumar. Garðarnir eru í landi Gróðrastöðvarinnar Gleymérei.
Boðið er upp á tvær stærðir garða, 15 m2 á kr. 4.148 og 30 m2 á kr. 5.880. Áhugasamir hafi samband við Björgu Gunnarsdóttur, umhverfis- og landbúnaðarfulltrúa Borgarbyggðar í síma 433-7100 eða með því að senda póst á netfangið bjorg@borgarbyggd.is .
 

Share: