Listasýning í Borgarnesi

desember 8, 2010
Í Borgarnesi hefur verið í gangi Listasmiðja fyrir fólk með fötlun, á vegum Símenntunarmiðstöðvar Vesturlands, frá því í mars á þessu ári. Boðið er til sýningar á verkum nemenda í Pakkhúsinu í Brúðuheimum, mánudaginn 13. desember kl. 17 – 19. Allir velkomnir.
Leiðbeinandi á námskeiðinu er Ólöf S. Davíðsdóttir listakona í Gallerí Brák. Nemendur/listamennirnir koma frá Fjöliðjunni og sambýlinu í Borgarnesi.
Á sýningunni verða einstök listaverk!
Share: