Laust starf við leikskólann Hnoðraból í Reykholtsdal

maí 4, 2012
Starfsmaður óskast í fullt starf við leikskólann Hnoðraból frá og með 9. ágúst 2012. Starfið skiptist þannig, 60% staða matráðs og 40% staða inn á deild.
Leikskólinn Hnoðraból er lítill og notalegur einnar deildar leikskóli. Þar eru að jafnaði 16-19 börn á aldrinum 18 mánaða til 5 ára og 4-5 starfsmenn. Nauðsynlegt er að umsækjandi hafi áhuga á að starfa með börnum og búi yfir færni í mannlegumsamskiptum, frumkvæði í starfi, jákvæðni, sjálfstæði og skipulögð vinnubrög.
Í samræmi við jafnréttisstefnu Borgarbyggðar eru jafnt karlar sem konur hvött til að sækja um störf hjá sveitarfélaginu.
Í samræmi lög um leikskóla nr. 90/2008 þurfa þeir sem ráðnir eru til starfa hjá leikskólum Borgarbyggðar að skila sakavottorði.
 
Umsóknarfrestur er til 21. maí n.k.
Upplýsingar um starfið veitir Sjöfn G. Vilhjálmsdóttir leikskólastjóri (sjofn@borgarbyggd.is) í síma 435-1157/862-0064.
 
 

Share: