Laust starf við leikskólann Hnoðraból – 2009

janúar 10, 2009
Starfsmaður óskast í 90% starf við leikskólann Hnoðraból að Grímsstöðum í Reykholtsdal sem fyrst.
 
Leikskólinn Hnoðraból er lítill og notalegur einnar deildar leikskóli. Þar eru að jafnaði 15-20 börn á aldrinum 18 mánaða til 5 ára og 4-5 starfsmenn. Sérstök áhersla er lögð á hreyfingu og skapandi starf.
 
Nauðsynlegt er að umsækjandi hafi áhuga á að starfa með börnum og búi yfir færni í mannlegum samskiptum.
 
Upplýsingar um starfið veitir Sjöfn G. Vilhjálmsdóttir leikskólastjóri (hnodrabol@borgarfjordur.is) í síma 435-1157 og 862-0064.
 

Share: