Laust starf á Hnoðrabóli

febrúar 14, 2013
Leikskólakennari óskast sem fyrst til starfa við leikskólann Hnoðraból í Reykholtsdal. Um er að ræða 40 % stöðu. Ef ekki fæst leikskólakennari kemur til greina að ráða starfsmann með aðra menntun og/eða reynslu.
Leikskólinn Hnoðraból er lítill og notalegur einnar deildar leikskóli. Þar eru að jafnaði 16-18 börn á aldrinum 18 mánaða til 5 ára og 5-6 starfsmenn.
Nauðsynlegt er að umsækjandi hafi áhuga á að starfa með börnum og búi yfir færni í mannlegumsamskiptum, hafi frumkvæði í starfi, sé jákvæður, sjálfstæður og vinni skipulega.
Í samræmi við jafnréttisstefnu Borgarbyggðar eru jafnt karlar sem konur hvött til að sækja um störf hjá sveitarfélaginu.
Í samræmi við lög um leikskóla nr. 90/2008 þurfa þeir sem ráðnir eru til starfa hjá leikskólum Borgarbyggðar að skila sakavottorði.
Nánri upplýsingar veitir Sjöfn G. Vilhjálmsdóttir leikskólastjóri,
í síma 435-1157/862-0064 eða tölvupósti; sjofn@borgarbyggd.is
 

Share: