Laus störf á Hnoðrabóli

júní 24, 2013
Lausar eru til umsóknar stöður leiðbeinenda við leikskólann Hnoðraból í Reykholtsdal. Ráðið verður í stöðurnar tímabundið og er ráðningatímarbilið frá 8. ágúst 2013 til sumarlokunar 2014. Um er að ræða 100% og 40% stöðu.
 
Leikskólinn Hnoðraból er lítill og notalegur einnar deildar leikskóli. Þar eru að jafnaði 16-18 börn á aldrinum 18 mánaða til 5 ára og 5-6 starfsmenn. Nauðsynlegt er að umsækjandi hafi áhuga á að starfa með börnum og búi yfir færni í mannlegumsamskiptum, hafi frumkvæði í starfi, sé jákvæður, sjálfstæður og vinni skipulega.
Í samræmi við jafnréttisstefnu Borgarbyggðar eru jafnt karlar sem konur hvött til að sækja um störf hjá sveitarfélaginu.
Í samræmi við lög um leikskóla nr. 90/2008 þurfa þeir sem ráðnir eru til starfa hjá leikskólum Borgarbyggðar að skila sakavottorði.
Umsóknarfrestur er til og með 4. júlí n.k.
Nánri upplýsingar veitir Sjöfn G. Vilhjálmsdóttir leikskólastjóri,
í síma 435-1157/862-0064 eða tölvupósti; sjofn@borgarbyggd.is
 

Share: