Landsnet boðar til funda vegna fyrirhugaðrar lagningu Holtavörðuheiðarlínu 1

maí 31, 2021
Featured image for “Landsnet boðar til funda vegna fyrirhugaðrar lagningu Holtavörðuheiðarlínu 1”

Landsnet boðar til funda með landeigendum vegna fyrirhugaðrar lagningu Holtavörðuheiðarlínu 1 í þessari viku. Fundirnir eru tveir annars vegar þann 1. júní að Hótel Hamri í Borgarnesi og seinni fundurinn að Hótel Glym í Hvalfirði þann 3. júní. Fundirnir hefjast kl: 20.00 og áætlað að ljúki um 22.00. Sama efni verður á báðum fundunum engin svæðisskipting einungis verið að gefa möguleika á tveimur dagsetningum og vali á fundarstað. Meginþema fundanna verður vinnustofa þar sem unnið verður með valkostagreiningu línuleiðar og einnig verða framsöguerindi sem tengjast því efni.

Landsnet vonar ap shæa sen flesta landeigendur á þessum fundum þar sem verið er að vinna með valkostagreiningu á línuleiðinni og mikilvægt fá inn álit sem flestra landeigenda og hagaðila á þessu stigi málsins. Auk starfsmanna frá Landsneti verður fólk frá ráðgjafstofunni Gembu og Verkfræðistofunni Verkís á fundunum

Vinsamlega skráið ykkur á fundina með því að senda nafn viðkomandi á elins@landsnet.is og hvort það verða fleiri en einn fulltrúi landeigenda sem mæta á fundinn/fundina.

Boðið verður upp á kaffi og meðlæti.


Share: