Kynningarfundur á fjölþættri heilsueflingu 60 ára og eldri í Borgarbyggð

desember 7, 2023
Featured image for “Kynningarfundur á fjölþættri heilsueflingu 60 ára og eldri í Borgarbyggð”

Þann 30. nóvember síðastliðinn var haldinn kynningarfundurinn á fjölþættri heilsueflingu 60+ í Borgarbyggð, leið að farsælum efri árum. Fjöldi fólks mætti á kynninguna og ljóst er að áhugi á verkefninu er mikill. Til stendur að innleiða verkefnið í Borgarbyggð í byrjun janúar. Verkefnið felst í að bjóða þátttakendum upp á tveggja ára markvissa heilsueflingu með það að markmiði að efla hreyfifærni, bæta afkastagetu, heilsu og lífsgæði þeirra sem taka þátt.

 

Fyrir þá sem höfðu ekki tök á að mæta á kynningarfundinn, þá er hægt að horfa á kynningarmynd fyrir Borgarbyggð hér: https://vimeo.com/891399214/f78c086923?share=copy

 

Nánari upplýsingar og skráning má svo nálgast á heimasíðu Janusar, www.janusheilsuefling.is


Share: