Kvöldstund með fjarskiptafélögum 5. desember n.k.

desember 3, 2019
Featured image for “Kvöldstund með fjarskiptafélögum 5. desember n.k.”

Þann 5. desember n.k. verður kynningarfundur frá kl. 18:00 – 22:00 í Logalandi, Reykholtsdal.

Íbúum gefst kostur á að hitta sölufulltrúa fjarskiptafélaga sem selja internet, sjónvarps og símaþjónustu. Það er í boði að fá verðtilboð og panta sér fjarskiptaþjónustu á staðnum. Auk þess verða fulltrúar Borgarbyggðar á staðnum til að svara spurningum um verkefnið.

Lagning á ljósleiðara í dreifðum byggðum Borgarbyggðar gengur samkvæmt áætlun. Senn líður að því að fyrstu notendur geti tengst kerfinu. Lagningu er lokið í áfanga 4 og 5 þ.e. frá Varmalandi að Reykholti auk þess sem unnið er að því að ljúka lagningu í áföngum 2 og 3. Á heimasíðu verkefnisins www.ljosborg.net geta íbúar séð hvaða áfanga þeir tilheyra. Íbúum í áföngum 2,3,4 og 5 er sérstaklega bent á að þetta er kjörið tækifæri til þess að hitta fulltrúa fjarskiptafélaga nú þegar komið er að því að tengjast kerfinu.

Hlökkum til að sjá sem flesta.
F.h. verkefnisins
Guðmundur Daníelsson


Share: