Jólaútvarp Óðals

desember 12, 2011
Árlegt jólaútvarp unglinga í Óðali hófst í dag kl. 10.00 með ávarpi útvarpsstjóra.
Jólaútvarpið er sannkallaður gleðigjafi í skammdeginu þar sem boðið verður upp á skemmtilega þætti, tónlist og fróðleik fyrir alla aldurshópa ásamt frábærum heimasmíðuðum auglýsingum sem vakið hafa lukku. Íbúum hefur þótt gaman að heyra hvernig auglýsingar breytast og taka framförum á milli ára en fyrirtæki hafa tekið vel á móti unglingunum og eru flest hver með auglýsingu.
Fréttir úr héraði verða fluttar kl. 12.oo á hádegi alla daga ásamt veðurfréttum og hádegisviðtali. Einnig skal sérstaklega bent á umræðuþáttinn „Bæjarmálin í beinni“ föstudaginn 16. des kl. 13.oo undir stjórn útvarpsstjóra Rúnars Gíslasonar og Gísla Einarssonar sjónvarpsmanns. Til þeirra mætir fólk úr atvinnulífinu, sveitarstjórnarmenn, og aðrir áhrifamenn í sveitarfélaginu til að ræða málefni líðandi stundar.
Hægt er að ná útsendingunni á 101.3 og einnig má hlusta á útsendingu á vefnum www.grunnborg.is
Meðfylgjandi mynd er af 1. bekk við upptökur.
 
 

Share: