Íbúafundur vegna Aðalskipulags Borgarbyggðar 2025-2037

október 26, 2023
Featured image for “Íbúafundur vegna Aðalskipulags Borgarbyggðar 2025-2037”

Þann 12. september næstkomandi verður haldinn íbúafundur í Hjálmakletti.

Tilefni fundarins er endurskoðun Aðalskipulags Borgarbyggðar 2025-2037 og önnur aðalskipulagsmál. Skipulagslýsing vegna endurskoðunarinnar er í kynningu á www.skipulagsgatt.is til 18. september 2023.

Dagskrá:

  • Kynning á skipulags- og matslýsingu fyrir endurskoðun aðalskipulags Borgarbyggðar
  • Kortlagning landbúnaðarlands og vega í náttúru Íslands í Borgarbyggð
  • Tillaga að breytingu á aðalskipulagi Borgarbyggðar, vegna stefnu um landbúnaðarsvæði

Fundurinn hefst kl. 20:00 og verður einnig sendur út í beinu streymi á vegum Kvikmyndafjelags Borgarfjarðar.

Hlekkur á fundinn má nálgast hér.

Hér má nálgast vefsjá fyrir endurskoðun Aðalskipulags Borgarbyggðar 2025-2037 sem verður kynnt á fundinum.


Share: