Hinn guðdómlegi gleðileikur í Borgarnesi

desember 27, 2013
Föstudaginn 27. desember, á þriðja dag jóla, verður jólasagan í alþýðustíl leikin í Hjálmakletti í Menntaskóla Borgarfjarðar.
Ævintýrið hefst með athöfn í kirkjunni kl. 18,00 en þaðan verður blysför gengin að menntaskólanum í Borgarnesi þar sem sýningin hefst um kl. 19:00. Á leiðinni verður staðnæmst við Tónlistarskólann þar sem Theodóra Þorsteinsdóttir, Olgeir Helgi Ragnarsson, Sigríður Ásta Olgeirsdóttir og Hanna Ágústa Olgeirsdóttir syngja “Ó helga nótt”.
Þetta er fjórða sinn sem Hinn guðdómlegi gleðileikur er fluttur. Textinn er allur í bundnu máli í anda gamalla helgileikja frá Bretlandi þar sem persónur jólaguðspjallsins taka á sig mannlegar myndir og atburðirnir hafa skýrskotanir til samtímans. Höfundar textans eru Kjartan Ragnarsson og Unnur Halldórsdóttir en leikmyndin er eftir myndlistarmanninn Ragnar Kjartanson.
Mikill fjöldi sjálfboðaliða tekur þátt í undirbúningnum og sýningunni sjálfri. Leikarar koma úr röðum íbúa Borgarbyggðar, vitringana þrjá leika til dæmis skólastjórar Leikskólans Uglukletts, Grunnskólans í Borgarnesi og Menntaskóla Borgarfjarðar, sveitarstjóri Borgarbyggðar leikur sendiboða og Ágústínus keisara leikur lögreglustjórinn í Borgarbyggð. Hollvinir Borgarness og Björgunarsveitin Brák sjá um undirbúning og skipulag. Þrír kórar sjá um sönginn, Barnakór Borgarness undir stjórn Steinunnar Árnadóttur, Freyjukórinn undir stjórn Zsuzsönnu Budai og Samkór Mýramanna undir stjórn Jónínu Ernu Arnardóttur. Leikstjóri er Eiríkur Jónsson.
 
Allir eru velkomnir meðan húsrúm leyfir en tekið skal fram að ekki verður hleypt inn í Menntaskólann fyrr en blysförin er komin á staðinn.
 

Share: