Heyrúlluplast

janúar 8, 2016
Ekki hefur verið tekin ákvörðun um endanlega útfærslu á söfnun á heyrúlluplasti árið 2016 en til að bregðast við brýnni þörf hefur verið ákveðið að fyrsta rúlluplastssöfnun ársins verði farin vikuna 25.-29. janúar 2016.
Einhverjir hafa þegar óskað eftir að láta sækja hjá sér plast hið fyrsta en allir þeir sem vilja láta sækja hjá sér plast í þessari ferð eru hvattir til að senda póst á Einar hjá Íslenska gámafélaginu á netfangið einarp@igf.is eða hafa samband við ráðhús Borgarbyggðar, s. 433-7100.
 
Þegar endanleg útfærsla þjónustunnar á árinu liggur fyrir, verður hún auglýst nánar.

Umhverfis-og skipulagssvið Borgarbyggðar
 

Share: