Gullpenslarnir í Safnahúsi Borgarfjarðar

mars 17, 2009

Litir jarðarinnar
Daði Guðbjörnsson

Laugardaginn 21. mars næstkomandi verður opnuð sýning nokkurra þekktra listamanna í Safnahúsi Borgarfjarðar en þeir mynda hópinn Gullpenslarnir. Helena Guttormsdóttir sér um sýninguna og útbýr kennsluefni henni tengdri. Sýningin stendur til 17. apríl. Gullpenslarnir er félagsskapur málara sem sýnt hefur bæði hér heima og erlendis. Þau hafa vakið verðskuldaða athygli og jafnvel verið kölluð landslið íslenskra málara. Á sýningunni í Safnahúsinu verða verk eftir þau Daða Guðbjörnsson, Helga Þorgils Friðjónsson, JBK Ransu, Jóhann Ludwig Torfason, Sigríði Ólafsdóttur og Sigurð Árna Sigurðsson.
Árið 2007 opnaði hópurinn sýninguna Indigo í Geðasafni. Þar voru sýnd málverk sem eiga það sameiginlegt að tengjast hinum sérstaka lit sem kallaður er indigó-blár. Málverkin eru af ólíku tagi en mynda mjög áhugaverða heild þar sem hinn einstaki blái litur er í öndvegi, hvort sem er í myndum Sigríðar Ólafsdóttur af föngum á Litla-Hrauni, fíngerðum plöntumyndum Eggerts Péturssonar eða myndasyrpu Jóhanns Ludwigs Torfasonar, leikföngum fyrir Indigobörn.
Safnahúsið býður alla velkomna á opnunina.

Share: