Gleymum ekki sókninni!

nóvember 24, 2009
Frá samstarfshópi um atvinnumál:
Nýverið skipaði sveitarstjórn Borgarbyggðar samstarfshóp sem falið er það verkefni að fjalla um atvinnumál og þá möguleika sem kunna að vera á eflingu atvinnulífs í sveitarfélaginu. Þrír fulltrúar úr sveitarstjórn eru í hópnum auk þriggja aðila sem koma úr atvinnulífinu. Auk þessara sex aðila starfa með hópnum fulltrúar frá Atvinnuráðgjöf Vesturlands.
Fimmtudaginn 26. nóvember næstkomandi verður haldinn hádegisverðarfundur í Geirabakarí, nánar tiltekið kl. 12:00, þar sem hópurinn mun, ásamt góðum gestum, kynna hlutverk sitt ásamt því sem einstaklingar stíga á stokk og kynna þá vinnu sem í gangi er á svæðinu til eflingar atvinnulífs. Fundurinn er öllum opinn og eru allir þeir sem láta sig atvinnulíf í Borgarbyggð varða hvattir til að mæta og taka þátt í þeirri vinnu sem af stað er farin. Ætlunin er að halda áfram með fundi sem þessa, má þar nefna að fulltrúar frá Fjárfestingarstofu munu koma á opinn fund 10. desember næstkomandi og kynna sína starfsemi.
Oft er þörf en nú er nauðsyn, mætum í Geirabakarí og tökum þátt í umræðunni! Sjá auglýsingu hér
 
 

Share: